Iðjuleysinginn cover art

Iðjuleysinginn

Iðjuleysinginn

By: Leon og Maggi í Lennahelli
Listen for free

About this listen

Iðjuleysinginn gefur sér tíma til að rýna í málefni stór og smá. Fréttir dynja á okkur alla daga — hér gefum við okkur andrými til að skilja heiminn, frekar en að taka við tilbúnum túlkunum annarra.

© 2026 Iðjuleysinginn
Political Science Politics & Government Social Sciences World
Episodes
  • #11 Þrautarganga Gyðinga og raunir þeirra
    Apr 1 2026

    Send us Fan Mail

    Saga Gyðinga er sorgarsaga. Ekki er til nein þjóð né trúarbrögð sem hafa mætt slíkum ofsóknum eins og Gyðingar hafa mætt. Í gegnum aldirnar, og jafnvel árþúsundir, hafa þeir verið landlausir, búið við skert réttindi og á sumum tímabilum hreinlega reynt að útrýma þeim.

    Iðjuleysinginn fer yfir sögu Gyðinga og þeirra raunir og gerir tilraun til að setja áskoranir við botni Miðjarðarhafs í samhengi við sögu þjóðar sem hefur þurft að búa við mismunum svo langt sem sögur ná.

    Show More Show Less
    1 hr and 11 mins
  • #10 Angela Merkel og Evrópa samtímans
    Mar 25 2026

    Send us Fan Mail

    Það má færa rök fyrir því að Angela Merkel sé sá stjórnmálamaður sem hefur haft ein mest áhrif á stjórn Evrópu. Hún leiddi álfuna í mörgum málefnum, sem hefur bæði leitt af sér velsæld en einnig áskoranir sem Evrópa stendur frammi fyrir í dag.

    Iðjuleysinginn fer yfir sögu Angelu Merkel frá barnsæsku til kansara Þýskalands og setur það í samhengi við málefni álfunnar.

    Show More Show Less
    54 mins
  • #9 Uppgangur Pútíns og Rússland dregið á lappir
    Mar 18 2026

    Send a text

    Eftir þá niðurlægingu sem fylgdi hruni Sovétríkjanna hefur Vladimír Pútín náð sífellt sterkari tökum á rússnesku samfélagi og stjórnmálum. Í kjölfar óreiðuáranna undir stjórn Borís Jeltsíns var leitað til tiltölulega lítt þekkts embættismanns sem fáir hefðu þá getað ímyndað sér að myndi þróast í það vald sem hann er í dag. Rússland nútímans er að mörgu leyti orðið að Rússlandi Pútíns.

    Iðjuleysinginn fjallar um uppgang Pútíns innan valdakerfis Rússlands, sem og þá sögulegu þróun og sjálfsmynd sem hefur mótað stöðu landsins á síðustu áratugum.

    Show More Show Less
    1 hr and 3 mins
No reviews yet